It´s very simple!
Men like women, but most of the time they like sports and beer more.
If women understand that than there are no problems.
- Cody Punter
Þennan viskubrunn kom Cody sófadýrið mitt með um daginn þegar ég var eitthvað að tuða ofaní hálsmálið á mér að ég skilji ekki karlmenn. Svei mér þá ef hann hefur ekki bara rétt fyrir sér strákurinn :)

Ég veit ekki til þess að nokkur karlmaður hafi kíkt í þessa bók í lengur en 10 sekúndur. Nú verð ég bara að spyrja, væri ekki gáfulegra að gera karlmannahandbók með viti. Þ.e. karlmannahandbók fyrir konur um hvernig á að skilja karlmenn.
Karlmannahandbókin - skilningur, tamning, hugsanalestur
Ég er að segja ykkur það, hún mundi rjúka út eins og heitar NORSKAR lummur! Og svei mér þá ef að skilnuðum mundi ekki fækka um 90% líka. Til að vera sanngjörn þá set ég 10% á kvenfólkið ;)
Já, við bjórsi minn erum í gúddí fíling með lausn á öllum heimsins vandamálum! Húrra fyrir Thule!
2 tannburstar farnir í ruslið á 7 mánuðum. Spurning um að hætta svona vitleysu og gera eitthvað af viti. Ekki fleiri tannbursta takk...if you know what I mean :)
2 ummæli:
Hestatemjarar stunda víst aðferð sem felst í því að sýna villihesti mikla gæsku og kærleika og labba svo í burtu, í 90% tilfella eltir hesturinn. Þetta er bara einhver flökkusaga sem ég man ekki hvar ég heyrði, en makes you think huh?
Haha frábært. Ég hef það í huga næst. Þeir eru nú hálfgerð dýr þessir karlar híhí
Skrifa ummæli