sunnudagur, 28. júní 2009

Mess with me and thou shall be gay!


You have watched 72 minuits of video today. Please wait 54 minuits......

54 mínútur í meira True Blood og fantaseringar um heitan Vampírukoss. Gaurinn er bara tú hot!
Er þá ekki málið að blogga í 53....52 mínútur til að bæta upp fyrir bloggleysið undanfarið?

Ég var í heimaprófi um daginn, sat sveitt á lesstofunni á Vetrargörðum frá 8 um morguninn til miðnættis. Tók mér reyndar enn einn lúrinn í sófanum góða með lánsteppi frá einhverjum tilvonandi grönnum. Ég passaði mig samt á því að skila þeim á sama stað til að fyrra mig allri ábyrgð á slefblettunum í þeim.
Eftir heimaprófið var ég gjörsamlega að detta niður úr þreytu, pakkaði saman tölvunni og laumaði henni í skúffuna á skrifborðinu hennar Sjafnar, en ég var búin að planta mér aðeins aftar. Til öryggis hrúgaði ég líka blaðabunka ofaná.
Ég kem svo eftir vinnu daginn eftir og sæki dótið. Þá sé ég að einhver hafði verið að fikta í skúffunni, en gerði bara ráð fyrir því að það hafi verið Sjöbba.
Þegar ég kem heim og kveiki á tölvunni sé ég að einhver hefur verið í henni þar til hún varð batteríislaus og viti menn, var ekki facebook síða í gangi þegar hún kveikti á sér.

Nógu er manneskjan dónaleg að vaða í tölvuna mína, en hún er jafnvel enn vitlausari, því hún seivaði passwordið sitt!!!
Jæja...þarna var ég með opna facebook síðu hjá píu sem stalst í tölvuna mína....

Ég byrjaði á því að láta hana hætta með kærastanum........
Dúddídú.....gerum hana gay líka......."interested in women"........
og kannski að eiga smá við statusinn líka...."X hefur ákveðið að koma útúr skápnum"
Þarna blasti svo við einhver pía í "People you may know" ....skellti á hana einu stykki friend request með orðunum " ég hef alltaf verið svo hot fyrir þér!"
Ég vildi nú ekki gera meira við stelpugreyjið en beið spennt eftir að sjá viðbrögðin hjá fólki. En þrátt fyrir dónaskapinn og heimskuna var hún of snögg að breyta passwordinu. O well, ég skemmti mér vel í 5 mínútur.

Í augnablikinu er ég komin 5 mánuði á leið af köku og grilláti. Náði að láta mömmu missa andlitið með því að belgja aðeins út bumbuna og spyrja hvort henni langi ekki í fleiri barnabörn. Hún fékk vægt taugaáfall og fær nú áfallahjálp á Landspítalanum.
Ég var að gæla við það að gera það sama við Halla en veit að ég fengi eitthvað enn meira nasty til baka. Best að láta það eiga sig...
Vinir mínir eru verri en kanínur á Viagra!! Ég ætla að standa við það næstu jól að senda smokka með jólakortunum. Kannski leiðbeiningar með til öryggis. Ég bið ykkur vinsamlegast um að fara ekki líka að gifta ykkur fólk, þá lýsi ég mig endanlega gjaldþrota!

Ég dró börnin mín tvö með mér á fjölskylduhátíð Icelandair á Flúðum í gær. Hápunkturinn var pottþétt þegar það var flogið yfir og látið rigna nammi. Það var ekkert smá notó að sitja í grasinu í sólinni og slappa af meðan yngri krakkinn fékk útrás í hoppuköstulunum. Ég fékk að gjalda fyrir það með því að líta út eins og grilluð bleikja.


Litla skottið fer á kostum eins og vanalega...

Í afmælisveislu hjá Friðriki Antoni, við vorum eitthvað að tala um brúðkaup: Mamma, ætlar þú ekki að giftast Halla?? Sem betur fer var ég orðin að bleikju þannig að ég gat falið roðann.

Á leiðinni úr matarboði hjá foreldrum Halla:
Halli, ætlarðu að gista hjá okkur enn eina ferðina???
Foreldum hans var ansi mikið skemmt :)



Núverandi sófadýrin mín lykta eins og þau hafi ekki baðað sig í mánuð. Hver veit, kannski hafa þau ekki baðað sig síðan þau voru hjá mér síðast, voru að hjóla hringinn.

Æji....spurning um að fara bara að sofa og fantasera þannig um vampírukoss....

Bleikjan

4 ummæli:

Unknown sagði...

ég ætla aldrei í tölvuna þína án þess að biðja um leyfi!!!

Nafnlaus sagði...

kvittkvitt.

knús yfir hafið. :*

saknaðarkveðjur frá Dk
Karen frænka.

marta sagði...

í alvöru? fór einhver svona í tölvuna þína?
Vá hvað mig langar að vita hver gerði það! :)

hils

Rakel sagði...

Það var einhver Selma. Hef aldrei séð hana áður.