sunnudagur, 10. maí 2009

Fréttaskot


Í gær labbaði 100 manna skrúðganga með lúðrasveit og öllu framhjá húsinu okkar. Ég hef ekki hugmynd um afhverju í ósköpunum það var skrúðganga 9. maí þannig að eftir miklar pælingar ákváðum við Diljá að það væri okkur til heiðurs og skelltum okkur út á svalir á náttbuxunum og vinkuðum fólkinu. Halli kom með þá frábæru hugmynd að hafa skrúðgöngu á afmælinu sínu. Ég hugsa að ég hermi og hafi skrúðgöngu á þrítugsafmælinu mínu. 
Ég hvet ykkur öll til að mæta á Hlemm þann 18. september 2011 kl: 13:00 og við göngum saman Laugarveginn mér til heiðurs. 



Sonja yndislega systir mín sem er yndisleg og best og æðislegust, var að koma úr 4 mánaða heimsreisu. Meðan ég beið spennt eftir að fá að hitta hana skellti ég í eina köku handa skvísunni. Ég fór svo heim hlaðin af skemmtilegum gjöfum handa okkur mæðgum. Takk sæta mín!! :*


Hún er ekki svona bleik eins og systir sín, heldur átti ég ekki brúnan. (Hárinu reddaði ég með kakó). Þarna er hún í Laos að túbast og sötra Beer Lao. 

Harpa hefur ekki enn viljað segja mér hvaða gleðipillur hún er að taka, en ég varð að prufa jákvæðnina án þeirra. Ég gubbaði aðeins í kokið á mér við að skrifa línurnar hér fyrir ofan og hef komist að því að ég þarf pillurnar til að geta þetta. Ég er samt viss um að Sólveig er á þeim líka eftir að hafa verið fan of "life is great" á Facebook. Ætla að reyna að draga nafnið á gleðipillunum uppúr henni. Eða kannski eru þær bara svona high on looovvvvveee, high on loooove.......
En jú, systir mín er nú samt yndisleg :D


Eftir að hafa montað mig af kökunni á Facebook og reddað Tinnunni minni enn og einu sinni hef ég fengið hin ýmsu viðurnefni. Ég ætla því að hafa samband við Símaskrána á morgun og láta breyta upplýsingunum um mig. Ég mun því vera: Rakel Ráðagóða Sófusdóttir, Snillingur, Reddari og Bakarameistari. Er ekki líka skárra að vera RRS heldur en RS! Hver vill heita það sama og vírus! Er ekki nóg að nafnið mitt þýði rolla for kræing át lád!
Jú svo styttist í að ég verði Ferðamálafræðingur líka. Spurning um að leigja sér bara sér síðu í símskránni. 

Tuða minna, læra meira. 

Friður sé með yður!

5 ummæli:

Kristinn Snær Agnarsson sagði...

gleymdir einu í þetta nýja símaskráar nafn þitt...

Rauðhærða.

Nafnlaus sagði...

Það var mikið að þú bloggaðir góða! Meira af þessu, getur þú annars ekki orðið high on love eins og allir aðrir?
-Magga

ynja sagði...

hey...ég er ekki étandi þessari pillur en ég er samt líka fan á fb á life is great og fleira....ég haka bara við allt sem poppar upp, það er geðveikt auðvelt. :)
Líst vel á skrúðgönguna.
En hey....ég var nú ekki búin að koma heim í 9 mánuði og þú bakaðir ekki handa mér....búhuuuu, heimta klárlega köku þegar ég kem heim næst. :)
Knús Karen frænka.

p.s....ég er líka með fullt í símaskránna ef þig vantar....t.d. steddí leit...bwahahaha. :)

Harpan sagði...

þú ert SNILLINGUR í kökugerð skvísa :)
ég hélt að mamma væri búin að segja þér nafnið á pillunum á fésinu ;)
knús

Rakel sagði...

Rauðhærða og steddí leit...það er ekkert hrós :/ Það vita allir að rauðhærðir eru ekki með sál.

Jú ég get verið high on loooooove en það breytir samt ekki vissum staðreyndum um líf mitt.

Karen þú færð köku þegar þú flytur endanlega heim aftur ;)

Alveg rétt Harpa, ég verð að finna það aftur. En var það ekki bara eitthvað vítamín eða eitthvað?