Um daginn langaði mig að teikna, en þar sem ég kann ekkert að teikna tékkaði á á youtube. Datt þá inná myndband um hvernig á að teikna Manga andlit. Þetta var útkoman.

Ég prjónaði síðan ennisbönd handa mér og Diljá. Sjöfn kenndi mér að gera svona perluprjón en ég kíkti svo á youtube og lærði að hekla blóm.
Ég er líka búin að finna þar uppskriftir og allan fjandann. Maður þarf ekki nema að skrifa "How to (og það sem þig langar að kunna)" og maður getur lært hvað sem er, ef til vill skurðlækningar og alles. Húrra fyrir youtube!
1 ummæli:
Vá snilld, svo kennir þú mér alla snilldina sem þú kannst....fyrst að kenna mér að hekla. :)
Knús Karen frænka.
Skrifa ummæli